top of page

Draugar

tók drauga mína með mér á hótelið
leyfði þeim að þjóta
um öll herbergi

fylla þau og glæða lykt og lit
ég ásæki þennan stað
hann ásækir mig ekki

Stjarna

hún heldur augum sínum opnum
meðan ég reyni að skjóta loku fyrir allt
það er munurinn

Fuglinn

fann beinagrind úr fugli
í krækiberjalyngi
uppi í fjallshlíðinni
dó hann af náttúrulegum orsökum?

  • Instagram
  • Facebook
  • Instagram
  • Facebook

© 2024 Ísak Regal

bottom of page